Hlökkum til að taka á móti nýju ári með fjölbreyttri stundaskrá & spennandi nýjungum. Höldum okkar hefðbundnu tímum en bætum jafnframt við nýjum tímum og sérnámskeiðum. Á nýju ári bætast nýir og öflugir þjálfarar í hópinn.
Öflugra barnastarf
Vegna mikillar eftirspurnar fjölgum við barnahópum og bjóða upp á hentugri aldursskiptingu, æfingar fyrir 6–9 ára & 10–14 ára.
Sjá allt um æfingartíma, verð og dagsetningar á æfingarönn undir skráningarhnapp á bjjatlantic.is
Fjölbreytt stundaskrá
Brasilískt Jiu-Jitsu (Gi & Nogi), Yoga og Kickbox verða áfram fastir liðir í stundaskrá.
Spennandi námskeið á nýju ári
Grunnnámskeið í BJJ, Grunnnámskeið í MMA, Yoga & Breathwork Seminar & Sjálfsvarnarnámskeið fyrir konur.
Nánari upplýsingar um námskeið, dagsetningar og skráningu verða kynntar á nýju ári.
Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref á mottunum eða hefur æft í mörg ár er pláss fyrir þig hjá Atlantic. Þú þarft enga fyrri reynslu til að byrja og þér er velkomið að koma og prófa frítt !
