Á æfingum er áhersla lögð á BJJ tæknikennslu, styrk og þol æfingar. Hugmyndafræði Jiu- Jitsu fyrir börn er þekkt fyrir að stuðla að því að hjálpa börnum að öðlast aukið sjálfstraust, öryggi og sjálfsstjórn. Íþróttin kennir börnum að verja sig á öruggan hátt ásamt því að stjórna tilfinningum sínum í krefjandi aðstæðum. Aukin agi er einnig eitt af einkennum bardagaíþrótta.
NánarÍ framhaldstímunum er æft í GI eða Nogi, æfingar eru byggðar upp á upphitun, tæknikennslu og glímum.
Framhaldshópurinn er stór og þéttur hópur fólks á öllum aldri, konur og karlar, sem eiga það sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á Brasilísku Jiu- Jitsu.
Á grunnnámskeiði Atlantic er farið yfir undirstöðu atriði í sjálfsvörn og Brasilísku Jiu – Jitsu. Lagt er upp með að veita hverjum þátttakanda stuðning og góða leiðsögn.
NánarAtlantic býður konum, hópum og vinnustöðum upp á sjálfsvarnarnámskeið, þar sem kennd eru grunnatriði í sjálfsvörn.
Nánar