Konur kenna konum - eflum hvor aðra. ♡

Sjálfsvörn · BJJ · Styrkur & úthald · Yoga

Atlantic KONUR er æfinga samfélag fyrir konur þar sem áhersla er lögð á heilsu, félagsskap, eigið öryggi og sjálfstraust.

Markmiðið er að skapa öflugt og jákvætt kvennasamfélag innan Atlantic þar sem konur geta komið saman, hreyft sig, lært nytsamlega sjálfsvarnartækni og styrkt bæði líkama og huga.

Æfingar alla laugardaga kl. 10:00–11:00
Æfingarnar eru fjölbreyttar og byggja á þremur meginþáttum:

Sjálfsvörn & Brazilian Jiu-Jitsu (BJJ)
Kenndar eru hagnýtar sjálfsvarnaraðferðir og grunnatriði úr Brazilian Jiu-Jitsu. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg og tæknin er kennd með það að markmiði að konur öðlist aukið öryggi, færni og sjálfstraust.

Styrkur & úthald
Fjölbreyttar hreystiæfingar þar sem unnið er með styrk, úthald og almenna líkamsrækt. Æfingarnar eru aðlagaðar að mismunandi getu og hver og ein vinnur út frá sínum forsendum.

Yoga & hreyfanleiki
Yoga, teygjur og hreyfanleiki fá einnig sitt pláss. Þar er áhersla lögð á liðleika, líkamsvitund, jafnvægi og endurheimt.

4 vikna æfingahringur
Æfingarnar ganga í fjögurra vikna hring svo þátttakendur fái góða blöndu af sjálfsvörn/BJJ, styrktar- og úthaldsþjálfun og yoga.

Að fjórum vikum loknum hefst nýr hringur þar sem hægt er að vinna með nýja sjálfsvarnar- og BJJ tækni og fjölbreyttar styrktar-, úthalds- og yogaæfingar.

Fyrir hvaða konur er Atlantic KONUR?

Allar konur eru velkomnar.
Þú þarft ekki að hafa æft BJJ áður, vera í ákveðnu formi eða eiga sérstakan æfingabúnað. Þú mætir einfaldlega í þægilegum íþróttafötum og tekur þátt á þínum forsendum.
Starfið hentar jafnt konum sem vilja kynnast sjálfsvörn og BJJ í fyrsta skipti og þeim sem hafa áður stundað íþróttina og vilja halda áfram að þróa sína færni.

Við viljum skapa umhverfi þar sem auðvelt er að mæta í fyrsta skipti – hvort sem þú kemur ein eða með vinkonu.

Meira en bara æfing
Atlantic KONUR snýst ekki eingöngu um klukkutímann á æfingamottunni.
Við viljum byggja upp öflugt kvennasamfélag á Akureyri þar sem konur hittast, hreyfa sig, læra saman og efla hvor aðra.